Símaklefinn

5.500 kr.

Barnaheill, Símaklefinn og Síminn hafa tekið höndum saman í að hvetja til ábyrgrar símanotkunar og hvetja til símalausrar samveru. Hvatningarátakinu er ýtt úr vör í ljósi þess að rannsóknir sýna að skipulögð skjáhvíld geti eflt lífsgæði og skapandi hugsun barna.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur:

Lýsing

Þjóðarpúls Gallup sýnir að helmingur landsmanna telur sig verja of miklum tíma í símanum, eða öðrum snjalltækjum, og myndi gjarnan vilja draga úr notkun sinni. Þá telja 80% foreldra barna á aldrinum 10-14 ára barnið verja of miklum tíma í síma/snjalltækjum og myndu vilja minnka notkunina.

Símaklefinn er góður geymslustaður fyrir símtækið og býður uppá einfalda leið til þess að leggja símann frá sér.

Öll sala á Símaklefanum rennur beint til verkefna Barnaheilla er snúa að vernd gegn ofbeldi á börnum.