Frábær stemmning á fjölskyldutónleikum Barnaheilla

Vel sóttir fjölskyldutónleikar Barnaheilla fóru fram fyrr í dag í Fríkirkjunni í Reykjavík. Fjöldi gesta mætti til að njóta tónlistar frá Gugusar, Systrum og Páli Óskari. Kynnir var leikarinn Villi Netó sem sló á létta strengi ásamt því að fræða gesti um alþjóðastarf Barnaheilla. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni Haustsöfnunar Barnaheilla sem hófst í dag þar sem armbönd, framleidd í Síerra Leóne, eru seld til stuðnings neyðar- og þróunarstarfi sem miðar að því að vernda börn gegn ofbeldi.

„Hjá félagasamtökum eins og Barnaheillum er svo mikilvægt að finna samstöðuna og sjá og hitta fólkið sem styrkir okkur og styður starfsemina okkar. Ég er þeim afar þakklát,” sagði Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem var himinlifandi yfir góðum viðtökum tónleikagesta.
Páll Óskar sló í gegn eins og honum einum er lagið.
Gugusar fékk börn og fullorðna til að syngja og dansa með sér.

Eins og fyrr segir eru armböndin gerð af handverksfólki sem starfar á Lumley Beach markaðnum í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne. Með framleiðslunni leggja Barnaheill áherslu á atvinnusköpun og jafnrétti. Með kaupum á armbandinu er því ekki eingöngu stutt við vernd gegn ofbeldi á börnum heldur er einnig verið að valdefla og styðja við einstaklinga sem búa við kröpp kjör og þeim gefinn kostur á öruggara lífi.

Armböndin verða seld víðsvegar um landið til 3. september en einnig er hægt að kaupa þau á vefnum okkar.

 

Fyrr í vikunni fékk Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhend fyrstu armböndin. Halla tók vel á móti starfsfólki Barnaheilla, ásamt Eyju 7 ára, á fallegum degi á Bessastöðum. Eyja spurði nýjan forseta spjörunum úr og ræddu þær meðal annars saman um þau skref sem mikilvægt er að taka til að ná heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna. Barnaheill þakka Höllu kærlega fyrir hlýjar móttökur á Bessastöðum og óska henni farsældar í nýju starfi.

Um Barnaheill
Barnaheill -Save the Children vinna að mannréttindum barna um allan heim. Við störfum í 113 löndum og snertum líf 180 milljóna barna á hverju ári. Í alþjóðastarfi okkar höldum við úti fræðslu og forvörnum, bregðumst við mannúðarkrísum, veitum neyðaraðstoð og leggjum ríka áherslu á að raddir barna heyrist og réttindi þeirra séu virt. Við teljum að með því að tryggja velferð barna aukist líkur á velfarnaði þeirra síðar á lífsleiðinni.