Armbönd 2024

3.500 kr.

Haustsöfnun Barnaheilla er fjáröflunarleið Barnaheilla til styrktar erlendu starfi samtakana. Með kaupum á armböndunum styður þú við vernd barna gegn ofbeldiFjármagnið sem safnast nýtist meðal annars til aðstoðar við börn sem gengið hafa til liðs við vígahópa á átakasvæðumtil  koma undir sig fótunum á , v veitum stúlkum öruggt umhverfi til menntunarþjálfum kennara í jákvæðum kennsluaðferðum og virðingarríkum samskiptumhjálpum börnum sem brotið hefur verið á  leita réttar síns og  ná fram réttlæti og viðveitum börnum á átakasvæðum geðheilbrigðisþjónustusvo fátt eitt  nefnt.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur:

Lýsing

Framleiðsluferli armbandanna

Halla Tómasóttir forseti fékk afhend fyrstu armböndin í haustsöfnun barnaheilla

Armböndin sem seld eru í Haustsöfnun Barnaheilla 2024 eru framleidd í samvinnu við Aurora foundation og gerð  af handverksfólki sem starfa á Lumley Beach markaðnum í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne. Valdís Mist Óðinsdóttir, nemi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands, hannaði armbandið. Hún heimsótti markaðinn á Lumley Beach og varði þar dágóðum tíma á meðan hún hannaði armbandið.

Með framleiðslunni leggja Barnaheill áherslu á sjálfbærni, atvinnusköpun, jafnréttismál og umhverfismál.

Þetta er þriðja árið í röð sem Barnaheill selja umhverfisvæn armbönd unnin af handverksfólki í Síerra Leóne. Þetta árið voru framleidd 10.000 armbönd. Það tók framleiðsluferlið um einn  mánuð og fékk handverksfólk laun sem samsvaraði árslaunum fyrir vinnu sína.